Kóríanderýsa með salsahrísgrjónum og pistasíuhnetum
Salsa
350 g hýðishrísgrjón
700 ml vatn
2 rauð greipaldin, afhýdd og skorin í bita
1 mangó, afhýddur, steinhreinsaður og skorinn í bita
1/3 bit af rauðu chili-aldini, smátt saxað
safi af 1 límónu
2-3 vorlaukar, saxaðir
Aðferð: Sjóðið hýðishrísgrjónin í 40 mínútur og kælið stutta
stund. Blandið ávöxtunum saman við ásamt chili-aldininu, vorlauknum og safanum
af límónunni.
Ýsa
1,2 kg ýsa, beinhreinsuð og roðflett
1-2 msk ólífuolía
salt
Aðferð: Hitið ofninn í 180C. Setjið smjörpappír á bökunarplötu
og hellið ólífuolíunni ofan á. Skerið fiskinn í bita og raðið á plötunar. Stráið
örlitlu af saltflögum yfir og bakið í 7 mínútur, örlítið lengur ef sneiðarnar
eru þykkar.
Kóríanderolía
1 handfylli af fersku kóríander
1 dl ólífuolía
½ tsk salt
Aðferð: Vinnið saman kóríander og ólífuolíu í matvinnsluvél og saltið.
Setjið salsahrísgrjónin á disk og leggið fiskstykki yfir. Hellið u.þ.b. 1 msk af
kóríanderolíu yfir og stráið að lokum muldum pistasíuhnetum yfir.