Kartöflufat með reyktum silungi
1 kg kartöflur, meðalstórar
3 msk smjör
4-5 vorlaukar (hvíti og ljósgræni hlutinn)
175 g reyktur silungur eða lax
1/2 knippi dill
nýmalaður pipar
salt
4 egg
300 ml mjólk
Kartöflurnar afhýddar og soðnar þar til þær eru
tæplega meyrar. Látnar kólna
svolítið. Ofninn hitaður í 200 gráður. Eldfast fat, ekki of stórt en fremur
djúpt, smurt með helmingnum af smjörinu. Vorlaukurinn snyrtur og skorinn í
þunnar sneiðar. Silungurinn skorinn í þunnar ræmur og dillið saxað.
Kartöflurnar skornar í 5 mm þykkar sneiðar og þriðjunginum af sneiðunum
raðað á botninn í fatinu og þær kryddaðar með pipar og salti. Helminginum af
vorlauknum dreift yfir, helminginum af laxinum raðað ofan á og helminginum
af dillinu stráð yfir. Endurtekið og að lokum er afganginum af kartöflunum
dreift yfir. Eggin þeytt vel með mjólkinni og hellt yfir og afganginum af
smjörinu drepið ofan á í smáklípum. Sett í ofninn og bakað í um hálftíma,
eða þar til kartöfluþekjan er fallega gullinbrún.
Þetta má bera fram strax og borða heitt með salati en er líka gott volgt eða
kalt.