Karrífiskur með kókosmjólk
borið fram með grænmetishrísgrjónum og salati

Fiskurinn:
1 kg lúða (má líka nota lax eða ýsu)
1 dós kókosmjólk
1 msk salt
1 msk karrí
1 tsk túrmerik
1 laukur
1 tsk karrílauf
1 tsk tómatpuré
2 hvítlauksgeirar
1/2 tsk engifer
3 msk ólífuolía
1/2 svartur mulinn pipar
1/2 chiliduft

Olía hituð í potti og síðan er laukur, hvítlaukur, engifer, karrílauf, karrí, chiliduft, salt, túrmerik og tómatpuré sett út í  og hrært vel í. Fiskurinn er síðan skorinn í bita og honum blandað varlega saman við ásamt piparnum. Pottinum lokað með loki og látinn malla við mjög vægan hita í nokkrar mínútur. Grænu fersku kóríander stráð yfir áður en rétturinn er borinn fram með mango chutney.

Grænmetishrísgrjón:
150 g basmati hrísgrjón
5 bollar heitt vatn
1 msk salt
6 msk ólífuolía
1 kanilstöng
1 tsk svört piparkorn
5 gulrætur
1 blaðlaukur

Þrjár matskeiðar af ólífuolíunni settar í pott ásamt piparkornunum og kanilstönginni og látið malla í olíunni í smá stund. Hrísgrjónin skoluð og þeim bætt út í pottinn ásamt saltinu og vatninu. Hrært vel í með sleif. Látið sjóða í 20 mínútur við mjög vægan hita. á meðan á suðunni stendur er blaðlaukurinn skorinn smátt og gulræturnar í strimla og þetta steikt í 3 msk af olíu í öðrum potti. Gulrótunum og blaðlauknum er svo blandað vel saman við hrísgrjónin að aflokinni suðunni og látið sjóða saman í lokuðum potti í fimm mínútur.

Salatið:
íslensk salatblöð
4 tómatar
1 rauð paprika
1 rauðlaukur
1/2 gúrka
limesafi
salt
svartur pipar