Indverskur fiskréttur
1-2 ýsuflök (700 - 800 g)
2 stórir laukar
2 epli
2 bananar
2 paprikur
1/2 tsk garam-masala
1/2 tsk engifer
1-2 msk karrí
50-70 gr smjör eða olía
1 tsk salt
Hreinsið fiskinn, látið hann í eldfast mót og setjið í ofn í 10 mínútur.
Á meðan eru ávextirnir og grænmetið skorið niður, feitin sett á pönnuna og
kryddið látið krauma í feitinni (passið að brenna ekki), grænmetið og ávextirnir
settir út í og léttsteikt. Sett yfir fiskinn og bakað áfram í ca 15 mín. Borið
fram með hrísgrjónum og eða salati.