Indverskur fiskréttur
(bragðmikill) (fyrir 4)
700 g fiskur, roð- og beinlaus
1 laukur
2 hvítlauksrif
2 msk ferskur engifer, afhýddur
2 msk sítrónu- eða limesafi
1 dós jógúrt (180 g), hrein
1 msk ferskt kóríander, saxað eða 1 tsk þurrkað
1/8 Cayennepipar (sleppa er milda á réttinn)
1 tsk kummin (cumin)
1 msk paprikuduft
¼ tsk kardimommuduft
½ tsk salt
Setjið allt nema fiskinn í matvinnsluvél (eða brytjið mjög smátt og blandið
síðan saman). Skerið fiskinn í hæfileg stykki og raðið í smurt ofnfast mót.
Hellið blöndunni yfir. Bakið í 200°C heitum ofni í 8-12 mínútur eða þar til
fiskurinn er hvítur í gegn.
Berið fram með soðnum hýðishrísgrjónum/hrísgrjónum ásamt sítrónu- eða
límónubátum og grænmetissalati.