Humarréttur (fyrir 4)
Frá Osta- og smjörsölunni

300 g humar, skelflettur
2 saxaðir laukar
100 g sveppir, sneiddir
1 söxuð rauð paprika
60 g smjör
pipar
2 msk koníak
1-2 tsk karrí
11/2 dl rjómi
100 g hreinn rjómaostur
Látið lauk, sveppi og papriku krauma í smjörinu í nokkrar mín. Bætið rjóma, karrí og koníaki út í. Setjið humarinn saman við og látið krauma í um 3 mín. Bætið rjómaostinum út í og látið hann bráðna. Berið réttinn fram með soðnum hrísgrjónum og ristuðu brauði.