Humar og saltfiskur

Hráefni:

Saltfiskur

Humarhalar

Aðferð:

Saltfiskurinn er steiktur við lágan hita í smjöri í langan tíma á annarri hliðinni. Humarinn er steiktur á vel heitri pönnu í skamman tíma.

Brandada, hráefni:

Saltfiskur

Rjómi

Ólífuolía

Kóríander

Chili-pipar

Pipar

Aðferð:

Olía og rjómi hitað upp að suðu og saltfiskurinn eldaður rólega í honum. Brjótið fiskinn niður og kryddið með kóriander, chili-pipar og pipar.

Blómkálsfroða (hráefni):

Blómkál

G-mjólk

Smá-rjómi

Salt og pipar

Aðferð:

Skerið blómkálið niður í litla bita og sjóðið í mjólkinni. Maukið blómkálið vel í matvinnsluvél og kryddið með salti, pipar og kannski smá-truffluolíu. Blandan er sett á rjómasprautu.