Humar í smurostasósu (fyrir 4)
Frá Osta- og smjörsölunni
300 g humar, skelflettur
3 msk smjör
2 msk hveiti
1 bolli mjólk
1/4 bolli sérrí
1/2 tsk salt
2 msk sítrónusafi
250 g smurostur með humri
Látið humarhalana krauma í smjörinu í u.þ.b. 3 mín. Takið þá af pönnunni. Stráið
hveitinu yfir smjörið og hrærið vel í. Hellið allri mjólkinni út á. Látið sjóða
og hrærið vel í þar til blandan þykknar. Setjið sérrí, sítrónusafa og salt út í.
Látið þetta krauma í 2-3 mín. Bætið ostinum út í og hrærið meðan hann er að
bráðna. Setjið humarinn að síðustu út í. Berið fram með soðnum hrísgrjónum eða í
litlum brauðkollum.
