Hrísgrjón með grænmeti og sjávarfangi

Hér er sérlega ljúffengur
hrísgrjónaréttur með grænmeti og sjávarfangi,
þar sem sjávarfangið er valið eftir smekk og efnahag hverju sinni.
Þessi réttur hentar einnig vel sem fylling í tartalettur.
7½ dl Uncle Ben´s hrísgrjón
750 g rækjur, hörpuskelfiskur og/eða humar
2 dl ólífuolía
150 g sveppir
1 dl rjómi (ef vill)
1 stk stór rauð paprika
1 stk meðalstór blaðlaukur
1 stk stór græn paprika
svartur pipar
hvítlaukur
karrí
Matreiðsla
Sneiðið blaðlaukinn og gyllið hann á stórri pönnu í helmingnum af olíunni. Takið
laukinn af pönnunni. Dreifið hrísgrjónunum jafnt yfir pönnuna og bætið við olíu.
Látið grjónin ristast í smá stund á snarpheitri pönnunni en látið þau ekki
dökkna um of. Hellið rúmlega 1/2 ltr af vatni á grjónin, lækkið hitann og bætið
við blaðlauknum. Látið smásjóða undir loki í 15 mínútur. Bætið við vatni ef það
þrýtur á pönnunni því það á að vera smá soð. Hreinsið á meðan sveppi og paprikur
og bætið á pönnuna jafnóðum. Setjið afþýtt sjávarfangið á pönnuna og látið sjóða
í hálfa mínútu. Kryddið varlega og þykkið soðið með rjómanum ef vill.
Framreiðsla
Berið fram með heitu smábrauði og örðu góðgæti.
Hollráð
Þessi réttur er einnig góður sem fylling í tartalettur.