Himneskur hátíðarfiskur
(fyrir 4)
700 g fiskur t.d. steinbítur, skötuselur eða ýsa, roð og beinlaus
5 msk hveiti eða heilhveiti
½ tsk salt
pipar
2 tsk karrí
2 tsk hvítlauksduft
3 msk matarolíu
1 blaðlaukur, saxaður
3 gulrætur, rifnar
1 dl matreiðslurjómi
4 dl léttmjólk
2 tsk sojasósa
½ grænmetisteningur
Skerið fiskinn í frekar stóra bita. Kryddið með pipar, salt og 1 tsk af karríi
og 1 tsk af hvítlauksdufti. Veltið fisknum upp úr hveitinu og snöggsteikið á
pönnu eða í potti í 2 msk af olíu. Setjið á disk og haldið heitum.
Bætið 1 msk af olíu á pönnuna ásamt afgangi af karríi og hvítlauksdufti. Laukur
og gulrætur sett út í og látið krauma. Hellið rjóma, mjólk og sojasósu út á
pönnuna og myljið grænmetisteninginn saman við. Sjóði við vægan hita í 10
mínútur.
Bætið fiskinum út í sósuna og hitað við vægan hita þar til hann er hvítu í geng.
Ef vill má þykkja sósuna með ljósum sósujafnara.
Berið fram á pönnu ásamt soðnum hrísgrjónum og grænmeti.