Gulrótarfiskur á pönnu (fyrir 4)
700 g fiskur, roð- og beinlaus.
2-3 gulrætur, fínt saxaðar
2 laukar, saxaðir
1 msk matarolía
1/2 -1dós tómatþykkni (70g)
1 msk estragon, þurrkað
1/2 tsk salt
pipar
1 dós sýrður rjómi, 5%
Kraumið lauk og gulrætur í heitri olíu á pönnu.
Hrærið tómatþykkninu saman við og bragðbætið.
skerið fiskinn í stykki og látið út í sósuna
og sjóðið þar til hann er orðinn hvítur i gegn.
Kryddið með estragoni, salti og pipar.
Berið fram með soðnum kartöflum, grænmetissalati og hvítlauksbrauði.