"Gúllassúpa"" með fiski"

2 msk ólífuolía
1 laukur, saxaður
2 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
2 bökunarkartöflur, afhýddar og skornar í teninga
4-5 tómatar, vel þroskaðir, saxaðir (eða 1 dós niðursoðnir)
1 msk tómatþykkni (paste)
1 msk paprikuduft
chilipipar eða chilisósa eftir smekk
2 lárviðarlauf
1/2 tsk kummin, steytt
1/4 tsk kúmen, steytt (má sleppa)
nýmalaður pipar
salt
1 l vatn
3-400 g fiskur, t.d. ýsa, roð- og beinlaus
söxuð steinselja (má sleppa)

Olían hituð í þykkbotna potti og laukurinn látinn krauma í henni í 3-4
mínútur. Hvítlauknum bætt út í og 2-3 mínútum síðar kartöflum og tómötum.
Tómatþykkninu og öllu kryddinu hrært saman við og síðan vatninu. Hitað að
suðu og látið malla við hægan hita undir loki í 35-40 mínútur. Þá er súpan
smökkuð til. Fiskurinn skorinn í fremur litla bita, settur út í og látið
malla í 3-4 mínútur. Potturinn tekinn af hitanum og látinn standa í 2-3
mínútur í viðbót en síðan er súpunni hellt í skál, steinseljunni stráð yfir
og súpan borin fram.