Grilluð silungaflök með So!Go-sultu frá Fylgifiskum
2 silungaflök, um 1 kg
1 hvítlauksrif
3 msk. ólífuolía
1 msk. kornað sinnep
3 msk. engifer-chilisulta (frá So!Go)
½ búnt steinselja
1 tsk. græn piparkorn
Maldon-salt og nýmulinn pipar
Maukið hvítlaukinn í matvinnsluvél, bætið ólífuolíunni út í ásamt sinnepinu,
sultunni og steinseljunni.
Penslið maukinu á silungaflökin. Grillið í um 3 mín. á hvorri hlið, byrjið með
roðhliðina niður. Smyrjið silunginn
með kryddmaukinu á meðan. Saltið og piprið eftir smekk. Stráið grænu
piparkornunum yfir fiskinn rétt í
lokin. Berið t.d. fram með bakaðri kartöflu og mangósalsa.
