Grilluð klausturbleikja
1 kg Klaustursbleikjuflök
3 msk ólífuolía
1 msk límónusafi
1 msk engifer , saxað
salt
pipar
Leiðbeiningar
Silungurinn er settur í mót og leginum er hellt yfir og látið standa í
30 mín. Grillið er hitað upp á meðan og fiskurinn er grillaður við mikinn hita í
3-4 mín. á hvorri hlið. Fyrst með roðhliðina upp. Kryddað með salti og pipar.
Rétturinn hentar vel með grilluðu grænmeti, kaldri hvítlaukssósu og salati.