Grillaður fiskur með kínversku grænmeti
1 lítil gúrka
1 msk. sesamolía
2 gulrætur, skornar í strimla
1 tsk. rifin, fersk engiferrót
3-4 vorlaukar eða 1 lítill blaðlaukur, saxaðir
2 hvítlauksrif, pressuð
1 dl edik
1 msk. hoisin sósa
2 msk. púðursykur
800 g lúða, lax eða silungur
salt og pipar
Kljúfið gúrkuna í tvennt og fjarlægið kjarnann
úr henni með skeið. Skerið gúrkuna í sneiðar. Hitið olíuna á pönnu og mýkið
gulræturnar í henni. Bætið engiferrótinni, gúrkunni, vorlauknum og hvítlauknum á
pönnuna og látið krauma í nokkra mínútur. Bætið edikinu, hoisin sósunni og
púðursykrinum saman við og sjóðið í 5-7 mínútur.
Kryddið fiskinn með salti og sítrónupipar og glóðarsteikið hann. Berið fram með
grænmetisblöndunni.