Grillaður steinbítur með paprikusalsa

Hráefni:

700 g steinbítsflök

3 msk. ólífuolía

1 tsk nýrifin engiferrót

hvítur pipar

salt

1 sítróna

3-4 paprikur (rauðar, gular, appelsínugular)

10-12 basilíkublöð

2 msk. rautt pestó

 

Aðferð:

Steinbíturinn skorinn í stykki, penslaður með olíu, kryddaður með engifer, pipar, salti og örlitlum sítrónusafa og látinn bíða á meðan paprikurnar eru grillaðar. Kveikið á grillinu í ofninum og látið hitna. Paprikurnar skornar í helminga, penslaðar með olíu, kryddaðar með pipar og salti og grillaðar þar til mestallt hýðið er svart. Settar á disk, plastfilma breidd yfir og látnar bíða í 5 mínútur – þá ætti að vera auðvelt að afhýða þær og fræhreinsa. Settar í matvinnsluvél ásamt basilíkunni og grófsaxaðar – þær eiga ekki að verða að mauki. Pestói og ólífuolíu blandað saman við og bragðbætt með pipar, salti og sítrónusafa eftir smekk. Steinbíturinn settur á bökunarplötu klædda olíubornum álpappír, örþunnt skorin sítrónusneið lögð ofan á hvert stykki og grillað í 5-7 mínútur eða þar til hann er rétt steiktur í gegn. Borið fram með soðnum kartöflum og paprikusalsa