Grillaður skötuselur með lambalundum
Skemmtilegt er að bera þennan rétt fram á gólf- eða veggflís. Það er hægt að fara á útsölur og fá flísar á góðu verði.
Setjið sjálflímandi filttappa undir.


Hráefni:
800 g skötuselur
8 lambalundir
2 laukar
20 steinlausar döðlur
graslaukur til skrauts
smjör
olía
Kryddlögur (hráefni):
8 hvítlauksgeirar
rósmarín af einni stórri grein
salt eftir smekk
svartur pipar úr kvörn
3 dl ólífuolía
Allt sett í matvinnsluvél.


Aðferð:
Snyrtið skötuselinn og skerið í hæfilega bita, þó ekki lengri en lundirnar. Notið beittan hníf með mjóu blaði til að stinga í gegn og gera göng fyrir kjötið. Farið varlega í þessa aðgerð. Takið ögn af kryddleginum og notið til að pensla í lok grillunar. Leggið bitana í kryddlöginn ásamt lambalundunum í 1 klst. í kæli og 1 klst. á eldhúsbekk. Takið hráefnið úr leginum og dragið lambalundirnar í gegnum skötuselsbitana. Grillið við ágætishita þar til fiskurinn er vel laus á grillinu eða þar til lambið er hálfsteikt (medium rare), takið af grilli og látið bíða í 4-8 mínútur áður en hann er skorinn. Saxið laukinn og döðlurnar smátt eða eftir smekk. Setjið olíu og smjör á pönnu, þá laukinn og síðan döðlurnar. Látið malla við vægan hita þar til laukurinn er orðinn mjúkur. Skerið bitana niður í hæfilegar sneiðar og leggið yfir döðlulaukinn á diskunum. Gott er að hafa með bakaða kartöflu og ferskt lollo rosso-salat.

[Þessi uppskrift hljómar mjög spennandi, en mér (Erla) finnst skötuselur ekki góður vel eldaður svo ég ætla að prufa þessa með því að létt steikja lundirnar áður en ég dreg þær í gegnum skötuselinn.]
Væri til í að heyra frá ykkur ef þið prufið þessa :-)