Grillaður lax með sítrónukartöflum (fyrir 4)

 

4 laxasneiðar (600 g)

 

Kryddlögur:

½ tsk salt
½ tsk pipar
½ fennikufræ, steytt
1 msk ferkt kóríandar eða 1 tsk þurrkað
1 msk límónusafi
1 msk sinnep
2 msk matarolía

Hrærið saman öllu sem fer í kryddlöginn. Smyrjið laxasneiðarnar með kryddleginum. Grillið á vel heitu grilli í 2-3 mínútur á hvorri hlið.

Sítrónukartöflur:

700 g kartöflur, litlar
2 sítrónur
1 msk edik
6 hvítlauksrif
4 msk ólífuolía
1 búnt steinselja, smátt söxuð
½ salt
1 tsk pipar

Sjóðið kartöflurnar. Útbúið kryddlöginn á meðan þær sjóða:
Blandið saman sítrónusafa og ediki. Merjið hvítlaukinn og setjið í löginn ásamt olíu, steinselju og kryddi og blandið vel saman. Flysjið kartöflurnar og skerið í teninga og raðið á fat.

Hellið kryddleginum yfir kartöflurnar og berið fram með laxinum ásamt grænmetissalati.