Grillaður túnfiskur
Sérlega góður réttur frá Úlfari Finnbjörnssyni matreiðslumeistara. Sannkallað sælgæti.



800 g túnfiskur í fallegum sneiðum
1 dl ólífuolía
1 dl ólífuolía til að pensla túnfisk með
2 msk ferskt kóríander, saxað
2 msk súrar gúrkur í bitum
2 msk kapers
12 stk ólífur, sneiddar
4 stk sólþurrkaðir tómatar, skornir í bita
1 tsk svartur pipar
1 stk rauðlaukur, saxaður
salt og nýmalaður, hvítur pipar
60 sm af álpappír (miðað við f. 4)
Sósa
2 dl léttmajones
200 g sýrður rjómi
1 dl saxaðar hundasúrur
2 msk sítrónusafi
salt og nýmalaður hvítur pipar


Matreiðsla

Brjótið álpappírinn saman í miðju og setjið allt sem í uppskriftina á að fara, nema túnfiskinn, á tvöfalda örkina. Lokið álpappírnum vel og grillið á heitu grilli í 2 mín. Penslið fiskinn með olíu og kryddið með salti og pipar. Grillið á heitu grilli í 1-2 mín. á hvorri hlið (fer eftir þykkt stykkjanna).

Sósa
Blandið öllu vel saman.

Framreiðsla
Berið fram með kaldri hundasúrusósu, grilluðum kartöflum og grilluðu grænmeti, t.d. dvergbít (zucchini) og eggaldini.