Grillaðar rækjur á teini

250 g hráar, skelflettar rækjur, stórar
1/2 rauð paprika
1/2 gul paprika
safi úr 1/2 sítrónu
safi úr 1/4 appelsínu
1/2 tsk sambal olek, eða önnur chilisósa eftir smekk
1/4 tsk oregano
nýmalaður pipar
salt

Rækjurnar þíddar og látið renna vel af þeim. Paprikurnar fræhreinsaðar og
skornar í bita. Rækjur og paprikubitar þrædd á teina til skiptis.
Sítrónusafi, appelsínusafi, sambal olek, oregano, pipar og salt hrært saman
í skál. Rækjurnar penslaðar með hluta af leginum og látnar liggja á meðan
grillið er hitað (eða í svona 10 mínútur ef það er þegar orðið heitt).
Teinunum raðað á grillið og rækjurnar grillaðar í svona 2 mínútur á hvorri
hlið, eða þar til þær eru rétt búnar að breyta um lit. Penslaðar einu sinni
eða tvisvar með leginum. Bornar fram strax með brauði og/eða salatblöðum.