Grillað skelfiskspjót með ávaxtachutney og karrýdressingu
fyrir fjóra

8 tígrisrækjur
8 risahörpudiskur
8 humarhalar
4 msk ólífuolía
1 rautt chilli
salt og pipar

Hreinsið skelfiskinn. Setjið ólífuolíuna í skál ásamt fínt söxuðu chilliinu.
Marinerið skelfiskinn í 20 mínútur. Raðið á spjót (2 af hverju á hvert spjót)

2 plómur
2 apríkósur
1 ananas
1 mangó
1 kúmen
1 kóríander
salt og pipar

Skerið ávextina í bita og blandið þeim saman í skál ásamt kryddinu og kryddið með salti og pipar. Skiptið niður í 4 hluta og pakkið í álpappír. Bakið í 10 mínútur á grillinu.

4 shallottulaukar
2 hvítlauksrif
4 msk karrýduft
2 dósir hreint jógúrt

Saxið laukinn fínt. Hitið pönnu og steikið laukinn ásamt karrýinu. Látið kólna og blandið jógúrtinni út á. Kryddið með salti og pipar.