Gratíneraður sjávarréttur
Frá Osta- og smjörsölunni
30 g smjör
2 msk hveiti
1/4 tsk salt
1 bolli mjólk
75 g grettir sterki rifinn
150 g rækjur
150 g humar
100 g krabbakjöt
100 g hörpuskelfiskur
120 g sveppir
2 msk sherry
1 msk sítrónusafi
1/4 tsk tabasco sósa
1/4 tsk worchesterhire sósa
75 g grettir sterki rifinn
3/4 bolli brauðmylsna
30 g smjör, brætt
Bakið upp hvíta sósu úr smjöri, hveiti og mjólk.
Saltið.
Bætið 75 g af rifnum grettir út í og hrærið í þar til osturinn er bráðinn.
Bætið rækjum, humri, krabbakjöti, skelfisk, sveppum sherrýi, sítrónusafa,
tabasco og Worcestershiresósu út í.
Blandið vel saman.
Setjið í eldfast mót.
Blandið saman brauðmylsnu og smjöri, þá osti, og dreifið yfir réttinn.
Bakið í u.þ.b. 40 mín.
Berið fram með nýju brauði og smjöri eða ristuðu brauði.