Gómsætur fiskur í kókos-karrýi að hætti Guðbjargar
800 g Ýsa/Þorskur
salt
safi úr 1 límónu, magn fer eftir smekk
límónubörkur á hnífsoddi
2 hvítlauksrif
200 g laukur
1-2 rauður chili pipar
2 msk olía
30 g engifer, ferskt
2-3 msk karrý
350 gr kókosmjólk úr dós
Skerið fiskinn í um þriggja sm þykkar sneiðar. Blandið salti, safa úr límónu
og límónuberkinum saman.
Veltið fiskistykkjunum upp úr blöndunni. Skerið lauk og chili pipar, merjið
hvítlauk og engifer og látið malla á pönnu. Bætið karrýi, pipar og kókosmjólk út
á pönnuna og látið malla í 10 mínútur. Saltið eftir smekk. Bætið síðan fisknum
út í og látið hann malla þar til hann er full eldaður. Gott er að bera fram með
hrísgrjónum, brauði og salati.