Glóðaður lax með rjómarósapiparsósu

4-6 laxasneiðar
1 tsk salt
1 msk smjör
1 tsk timjan
300-400 g pasta

Sósa
2 laukar í sneiðum
1 msk smjör
2 msk rósapipar
1 msk tómatsósa
2 dl hvítvín, má vera óáfengt
250 ml rjómi
1 tsk fiskikraftur
1 tsk ljós sósujafnari

Bræðið smjörið, blandið salti og timjan saman við. Penslið laxinn með kryddblöndunni og glóðið í u.þ.b. 5 mín. á hvorri hlið. Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum.
Látið rósapiparinn malla í hvítvíninu í 5-10 mín. Sneiðið laukinn í þunnar sneiðar og látið hann krauma í smjörinu á pönnu þar til hann verður fallega brúnn. Bætið vínblöndunni, rjómanum, tómatsósunni og kryddinu út í og sjóðið við vægan hita í u.þ.b. 10 mín. eða þar til sósan byrjar að þykkna, jafnið með sósujafnara og kryddið meira ef vill. Berið sósuna fram með glóðuðum laxi og pasta.