Glóðaður lax með gúrkusósu
800 g lax í sneiðum eða flaki
safi úr ferskri sítrónu
salt og sítrónupipar Gúrkusósa
1 ds sýrður rjómi, 18 eða 36%
80 g sýrðar agúrkur (asíur)
2 msk kapers
1 msk dill ferskt eða þurrkað
1/4 tsk salt
Látið laxinn bíða með sítrónusafa í u.þ.b. 1 klst. Hitið ofninn með grilli í
250°C eða notið útigrill, vel heitt. Penslið ristina með olíu. Stráið salti og
sítrónupipar yfir laxinn og grillið í u.þ.b. 5 mín. á hvorri hlið.
Gúrkusósu
1 ds sýrður rjómi, 18 eða 36%
80 g sýrðar agúrkur (asíur)
2 msk kapers
1 msk dill ferskt eða þurrkað
1/4 tsk salt
Saxið gúrkur og kapers í kvörn og blandið saman við sýrða rjómann ásamt kryddi.
Látið bíða um stund. Berið sósuna fram með glóðuðum laxi, soðnum kartöflum og
ferskri agúrku eða agúrkusalati.