Fljótlegur saltfiskréttur
2 – 300 gr. saltfiskur (soðinn án roðs)
nokkrar meðalstórar kartöflur
1 laukur
1 – 2 hvítlauksrif
1 – 2 gulrætur
½ rauð
½ græn paprika
venjuleg ólífuolía
smjör
Olía og smjör er hitað á pönnu eða í þungum potti við
frekar lágan straum. Kartöflurnar skornar í munnbita, laukurinn og hvítlaukurinn
smátt, gulræturnar í sneiðar og paprikan í strimla. Kartöflurnar eru látnar
krauma í 5 mín., þá er lauk og hvítlauk bætt út í og látið krauma í aðrar 5
mínútur. Nú er grænmetinu ýtt aðeins til hliðar og búið til pláss fyrir
saltfiskinn. Gott er að setja smjörklípu í plássið áður en fiskurinn er settur
þar. Paprikunni er líka bætt útí nema að hún eigi að vera hrá. Hún gefur
allavega fallegan lit.
Það er líka hægt að bæta fínskornum tómötum útá pönnuna eða jafnvel tómötum úr
dós. Þetta á sérstaklega við ef lítil feiti er notuð. Best er þó að spara ekki
smérið og/eða olíuna ekki frekar en Spánverjarnir, Portúgalarnir og suður
frakkarnir (og sleppa tómötunum).
Það má líka sjóða grænmetið sér, steikja saltfiskinn (soðinn) með lauk og hvítlauk á pönnunni (hann (fiskurinn)er ægilega góður þegar hann hefur fengið smá skorpu) og e.t.v. bæta grænmetinu útá pönnuna rétt í lokin en mér finnst skemmtilegast að bera þetta fram í pönnu eða grunnum potti og hafa innihaldið þannig að fallegt sé á að líta.
Meðlæti eins og tapenade, pesto eða kóríanderlauf passar mjög vel með þessu.