Fiskur með tómatpestósósu og beikoni

7-800 g þorsk- eða ýsuflök, roðflett og beinhreinsuð
nýmalaður pipar
salt
1 msk smjör eða olía
1 dós niðursoðnir kirsiberjatómatar (eða saxaðir tómatar)
3 msk rauð pestósósa
skvetta af rauðvíni (má sleppa)
1 lítill kúrbítur
10-12 ólífur
nokkrar sneiðar magurt beikon

Ofninn hitaður í 190 gráður. Fiskurinn skorinn í stykki og kryddaður á báðum
hliðum með pipar og salti. Eldfast fat smurt með smjöri eða olíu og fiskinum
raðað í það. Tómötunum og pestósósunni blandað saman, dálitlu rauðvíni (3-4
msk) e.t.v. hrært saman við og kryddað með svolitlum pipar og salti. Hellt í
fatið allt í kringum fiskinn. Kúrbíturinn skorinn í bita og þeim og ólífunum
dreift í fatið (í sósuna, ekki ofan á fiskinn). Ein beikonsneið lögð ofan á
hvern fiskbita, samanbrotin eða samanvöðluð. Sett í ofninn og steikt í um 20
mínútur, eða þar til fiskurinn er steiktur í gegn og beikonið brúnt og
stökkt.