Fiskur með peperoni og kjúklingabaunum

700 g þorsk- eða ýsuflök, roðflett og beinhreinsuð
nýmalaður pipar
salt
1 msk ólífuolía
12-16 peperonisneiðar
1 dós kjúklingabaunir
1 dós tómatar, heilir
1/2 tsk oregano
1/4 tsk timjan
1/2 tsk sykur
8-12 svartar ólífur (má sleppa)

Ofninn hitaður í 200 gráður. Fiskurinn kryddaður með pipar og salti, e.t.v.
skorinn í stór stykki, og settur í eldfast fat sem penslað hefur verið með
olíunni. Peperonisneiðum raðað ofan á flökin. Leginum hellt af
kjúklingabaununum og þeim dreift í fatið á milli fiskstykkjanna. Tómatarnir
teknir úr leginum, grófsaxaðir og dreift yfir. Lögurinn úr dósinni kryddaður
með oregano, timjani, sykri, pipar og salti og hellt yfir og að lokum er
ólífunum dreift yfir. Sett í ofninn og bakað í um 20 mínútur, eða þar til
fiskurinn er soðinn í gegn. Borinn fram t.d. með góðu brauði