Fiskur í kryddhjúpi með kúskús
6-700 g þorsk- eða ýsuflök
250 ml brauðmylsna
1 tsk kummin, steytt
4-6 kardimommur, steyttar (má sleppa)
1 tsk paprikuduft
1 tsk túrmerik
nýmalaður pipar
salt
3 msk olía
1 egg, slegið
1 laukur, saxaður smátt
1 lárviðarlauf
1/2 l heitt vatn, og meira eftir þörfum
250 g kúskús
Fiskurinn roðflettur, beinhreinsaður og skorinn
í stykki. Brauðið brotið í
bita, sett í matvinnsluvél og hún látin ganga þangað til það er orðið að
mylsnu. Kummini, kardimommum, papriku, túrmeriki, pipar og salti blandað
saman við mylsnuna og hún sett á disk. 1 msk af olíu hituð í litlum potti og
laukurinn látinn krauma í henni í nokkrar mínútur án þess að brúnast.
Afgangurinn af olíunni hitaður á pönnu (helst húðaðri). Fiskinum velt upp úr
eggi og síðan úr brauðmylsnu og hann settur á pönnuna og steiktur við vægan
meðalhita. Afganginum af brauðmylsnunni hrært saman við laukinn ásamt
lárviðarlaufinu og síðan er sjóðandi vatni hellt yfir og látið sjóða í 1
mínútu. Kúskúsið sett í skál, vatninu hellt yfir, hrært með gaffli og diskur
(eða plastfilma) lagður yfir skálina. Fiskinum snúið, hann steiktur í 1
mínútu í viðbót og síðan er pannan tekin af hitanum. Þegar kúskúsið hefur
staðið í um 3 mínútur er hrært upp í því með gaffli, heitu vatni hrært saman
við ef það er mjög þurrt, og það smakkað til og kryddað eftir þörfum. Borið
fram með fiskinum, gjarna ásamt skyr- eða jógúrtídýfu.