Fiskur í kókoskarrísósu

600 g ýsuflök, roð- og beinhreinsuð
2 msk olía
2 laukar, saxaðir
2-3 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
1 rautt chilialdin, fræhreinsað og saxað
3-4 gulrætur, skafnar og skornar í sneiðar
2-3 paprikur, fræhreinsaðar og saxaðar
150 ml mild eða meðalsterk karrísósa úr krukku, t.d. Goan masala
½ tsk karríduft
1 dós (450 ml) kókosmjólk
nýmalaður pipar
salt
1 límóna

Fiskurinn skorinn í bita. Olían hituð á stórri pönnu og laukurinn og
hvítlaukurinn látinn krauma í henni í nokkrar mínútur við meðalhita. Chili
og paprikum hrært saman við og 1-2 mínútu síðar karrísósu, karrídufti,
kókosmjólk, pipar og salti. Börkurinn rifinn af límónunni og hrært saman
við. Látið krauma við hægan hita í um 10 mínútur og hrært öðru hverju.
Fiskbitarnir settir út í og látnir malla þar til þeir eru rétt soðnir í
gegn. Safa úr límónunni dreypt yfir skömmu áður en þeir eru tilbúnir. Sósan
er svo smökkuð til með meiri límónusafa, pipar og salti og borið fram með
soðnum hrísgrjónum.