Fiskirönd

 

 

600 g ýsulök, hreinsuð

2 msk kartöflumjöl

3 msk hveiti

1 tsk fiskikraftur

1/2 tsk season-all

1 tsk laukduft

1/2 tsk karrí

11/2 tsk salt

5-6 dl mjólk

Hakkið fiskinn eða saxið í kvörn. Blandið mjöli og kryddi saman við fiskinn og hrærið vel. Blandið kaldri mjólkinni smám saman út í og hrærið vel á milli í hrærivél eða blandara. Fiskdeigið á að verða samfellt og létt. Ef notaður er frosinn fiskur þarf minni vökva. Látið fiskdeigið í smurt mót með álpappír yfir og bakið í vatnsbaði í ofni við um 200°C í 50-60 mín.