Fiskipottur með rækjum og grænmeti

1 msk olía
1 laukur, saxaður
1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt
2-3 gulrætur, skornar í sneiðar
3-4 tómatar, fræhreinsaðir og skornir í bita
nokkrar timjangreinar (má sleppa)
1/2 lárviðarlauf
1/2 tsk kummin, steytt
chilipipar á hnífsoddi
nýmalaður pipar
salt
600 g ýsa, roðflett og beinlaus
1 msk tómatþykkni (paste)
150 ml matreiðslurjómi
250 g rækjur
2 vorlaukar, skornir í bita

Olían hituð í víðum potti (helst húðuðum) eða á stórri pönnu og laukurinn,
hvítlaukurinn og gulræturnar látið krauma við vægan hita í um 10 mínútur. Þá
er tómötum, timjani, lárviðarlaufi, kummini, chilipipar, pipar og salti bætt
út í og látið malla áfram við hægan hita í um 10 mínútur í viðbót. Hrært oft
á meðan. Ýsan skorin í bita og krydduð með pipar og salti. Hitinn hækkaður
ögn og grænmetinu ýtt til hliðar og ýsan sett á pönnuna. Steikt í um 1
mínútu og síðan snúið. Tómatþykkninu hrært saman við rjómann og hellt á
pönnuna. Hitað að suðu og látið malla í um 2 mínútur en þá er rækjunum
dreift yfir ásamt vorlauknum, hrært gætilega og látið malla áfram þar til
rækjurnar eru heitar og fiskurinn soðinn í gegn. Timjanið og lárviðarlaufið
fjarlægt. Borið fram t.d. með pasta eða hrísgrjónum.