Eldsteiktur humar í koníaks-rjóma á tagliatelle
600 g humarhalar
1/4 stk blaðlaukur
1/2 stk rauð paprika
1-2 stk rauðlaukur
2-4 stk gulrætur
3-5 stk hvítlauksgeirar
1 búnt basilika
1 msk ólífuolía
tvöfaldur brandí eða koníak
1 dl kjúklingasoð
2 dl rjómi
gróft sjávarsalt
hvítur pipar úr kvörn
soðið tagliatelli
Skel flettið humarhalana og snyrtið. Skerið blaðlauk langsum og skolið burt
allan sand sem leynist á milli laga. Skerið hann síðan í um 5cm langa strimla.
Fræhreinsið papriku og skerið í eins strimla. Afhýðið rauðlauk og skerið langsum
í sneiðar. Flysjið gulræturnar og skerið þær einnig í strimla, í sömu lengd.
Hakkið hvítlaukinn smátt. Skerið basilíkuna smátt. Hitið smjör og ólífuolíu á
víðri djúpri pönnu við meðalhita og steikið humarinn í 1-2 mín. Stráið
grænmetisstrimlum, hvítlauk og basilíku yfir. Hækkið hitann og steikið áfram í 1
mínútu. Hrærið stöðugt í. Hellið koníakinu yfir og kveikið í. Verið varkár því
að það blossar upp bál. Slökkvið eldinn með kjúklingasoði. Kjúklingasoð má búa
til úr súputeningi og sjóðandi vatni. Takið humarinn og grænmetið af pönnunni
með gataspaða og la´tið í skál. Hellið rjómanum yfir sjóðið á pönnunni og sjóðið
saman þar til rjóminn hefur þykknað og bragðið þéttist. Saltið og piprið eftir
smekk.
Látið humarinn og grænmetið út í rétt áður en rétturinn er borinn fram. Hitið
upp og hellið jafnt yfir fjóra diska af soðnu tagliatelle. Uppskriftin miðast
við fjóra.