Couliciac Lax – Innbakaður Lax
50 g smjör
1 blaðlaukur – smátt saxaður
1 rauðlaukur – smátt saxaður
1 gul paprika – smátt söxuð
1-2 hvítlauksrif
1 msk rifinn ferskur engifer
400 g soðin hrísgrjón, t.d. Basmati soðin með smá saffran
50 g heslihnetur – gróft saxaðar
85 g þurrkuð trönuber
2 msk dill – smátt saxað
2 msk fersk timjanblöð
börkur og safi úr hálfri sítrónu
Rifinn börkur af hálfri appelsínu
salt og pipar eftir smekk
150 g ferskur geitaostur, til dæmis Chavroux
1 pakki smjördeig
750 g lax, roðfléttur, um 10 cm á breidd
2 egg
Hitið ofninn í 190°C. Setjið bökunarpappír í ofnskúffu. Bræðið smjör í meðalstórum potti við vægan hita. Bætið blaðlauk, rauðlauk, og gulri papriku út í og hitið í fimm mínútur eða þar til grænmetið er orðið mjúkt. Bætið hvítlauk og engifer við og látið malla í eina mínútu. Takið af hitanum og setjið í stóra skál. Bætið við hrísgrjónum, heslihnetum, trönuberjum, kryddjurtum, sítrónu- og appelsínuberki og kryddið með salti og pipar eftir smekk. Látið kólna aðeins og bætið svo einu eggi saman við.
Leggið smjördeigsblað á ofnskúffuna. Setjið helminginn af hrísgrjónablöndunni ofan á en skiljið eftir eins sentímetra bil á jörðunum allan hringinn. Setjið fisk ofan á og smyrjið geitaosti yfir og þar ofan á afganginn af hrísgrjónunum. Penslið jaðra smjördeigsins með þeyttu eggi og leggið svo annað smjördeigsblað ofan á. Notið gaffal til að þrýsta smjördeiginu saman og búa til bakka, skerið afgangs smjördeig í burt með beittum hníf. Skerið skálínur með tveggja sentímetra millibili ofan á svo gufa komist út á meðan rétturinn bakast í ofninum.
Penslið smjördeigið með afganginum af egginu og bakið í 35 mínútur eða þar til rétturinn er dökkgullin að lit og stökkur að utan. Látið standa í fimm mínútur og berið síðan fram með fersku salati.