Blálanga í gorgonzola ostasósu
800 g blálönguflök
2-3 msk smjör (eða olíu)
80 g rauðlaukur
80 g sveppir
salt
1 ½ dl fiskisoð
hvítvín
2 dl rjómi
60 g gorgonzola ostur
1 msk fersk steinselja
Aðferð:
Afhýða rauðlauk og skerið í strimla
Saxa steinselju og sveppi
Roð og beinhreinsið flökin og skerið í ca 200 g bita. Steikið fiskinn í
smjöri/olíu á pönnu í um 2 mín, snúið við og steikið í 1 mínútu í viðbót ásamt
lauk og sveppum. Kryddið með salti. Bætið fiskisoði, hvítvíni og rjóma út á
pönnuna ásamt gorgonzolaosti. Sjóða þar til sósan þykknar og kryddið með salti
ef með þarf. Bætið saxaðri steinselju saman við.