Beikonvafinn skötuselur með humar- og skötusels pottrétti að hætti Helga Bergs

Skötuselur
Beikon
sítrónupipar
salt

Snyrtið skötuselinn, skerið hann í  ca 3 sm eftir endilöngu, kryddið og vefjið svo með beikoni.
Grillið á útigrilli og penslið með kryddaðri olíu á meðan grillað er. Passið að skötuselinn má bara grilla í örfáar mínútur , annars verður hann of stífur.

Humar- og skötuselspottréttur:

Laukur
paprika
piparostur
Rjómaostur með kryddblöndu
rjómi
nokkrir humarhalar
smá litlir bitar af skötusel
Fiskikraft

Mýkið lauk og papriku í potti, bætið ostinum út í og leysið upp með rjómanum, kryddið til með fiskikrafti. Þegar þið eruð sátt við bragðið bætið þá humrinum og skötuselnum út í í litlum bitum látið suðuna koma upp, takið af hellunni og látið standa í 5 mínútur.

Berið þetta fram með grilluðum sætum kartöflum, grilluðum gulrótum og hrísgrjónum.

Beikonvafinn skötuselur

Helgi Bergs að grilla