Saltfiskflök (ca. 700 g)
2 hvítlaukar skornir í sneiðar
1 msk. paprikuduft
ólífuolía
Meðlæti:
Tómatar og rauðlaukur skorið í sneiðar, sett í skál og olíu dreypt yfir.
Soðnar kartöflur og ólífur.
Fleira gott með fiskinum:
Paprika í strimlum
Laukur eða rauðlaukur í sneiðum
Tómatar sneiddir
- hitað í olíu.
Hvítlaukssósa:
Mæjónes eða sýrður rjómi
Jafnmikið af ólífuolíu
1 laukur, maukaður
1 hvítlaukur, maukaður
fersk steinselja söxuð
salt og pipar
- allt hrært saman.
Hvítlaukurinn gljáður í olíu á pönnu. Paprikunni stráð
yfir. Hrært vel og hellt yfir fiskinn í forminu.
Bakað í ofni í 5-10 mínútur.