Arinbjarnarýsa með pepperoni (Ýsa)

2 ýsuflök
1½ bolli soðin hrísgrjón
Hvítlauksolía (tilbúin eða heimagerð)
Góður slatti pepperoni.
1 dós tomat purré
Steinselja, timian, meiran, sítrónupipar og góður slatti rifin ostur t.d. Búri

Soðin hrísgrjón sett í botnin á stóru eldföstu móti. Tómat purré smurt yfir og steinselju stráð þar ofaná. Vætið lítillega í með hvítlauksolíu. Leggið ýsu-flökin það ofaná, kryddið með sítrónupipar og raðið síðan pepperoni það ofan á (þétt) og síðan meiri hvítlauksolía. Síðan er að krydda með timian og/eða meiran, osturinn yfir allt og inn í 180 gráðu heitan ofn á blæstri (200 á venjulegum) þar til osturinn er bráðnaður.


Ath. Fyrir sælkera. Blandið krömdum papprikuflögum í ostinn og notið þá Búra.
Drekkist með flösku af góðu hvítvíni og heimabökuðu brauði (td. með oregano, hvítlauk og sólþurrkuðum tómötum)