Tiramisu (af Nóavefnum)

1 pk. makkarónukökur
1 dl sterkt kaffi
1/2 dl Amaretto líkjör
3 egg
11/4 dl sykur
2 dl rjómi
250 g rjómaostur
Súkkulaðispænir

Blandið saman kaffi og líkjör, aðskiljið rauðuna frá hvítunni og þeytið rauðurnar með sykrinum. Þeytið rjómann og blandið honum saman við eggjarauðurnar. Mýkið upp rjómaostinn og blandið saman við stífþeyttar eggjahvíturnar. Bleytið kökurnar örsnöggt í kaffilíkjörsblöndunni. Leggið rjómaostblöndu og kökur á víxl í skál eða fat, tvö til þrjú lög. Skreytið með súkkulaðispæni.