Súkkulaðimús með sósu
250 gr suðusúkkulaði saxað
4 egg aðskilin
150 gr smjör mjúkt
¼ bolli rjómi
45 gr sykur
Sósa:
1 dl rjómi
1 msk skyndikaffi
2 msk vatn
1 msk kakó
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Hrærið
eggjarauðunum saman við einni í einu, þá rjómanum. Hrærið smjörinu saman við
smátt og smátt. Þeytið hvíturnar, bætið sykrinum saman við og stífþeytið.
Blandið hvítunum varlega í súkkulaðihræruna. Skiptið hrærunni í skálar, kælið
hægt er að laga músina með dags fyrirvara, en þá þarf að láta músina standa við
stofuhita í ca 30 mín áður en hún er borin fram.
Sósan: leysið skyndikaffið upp í vatninu, þeytið rjómann örlítið upp með þeytara
þannig að froða myndist. Blandið kaffinu saman við, hellið yfir músina rétt áður
en borið er fram. Stráið kakói yfir ef vill.