Skyrmarengs
2 hvítir marengsbotnar (gott að hafa líka með kókosbragði)
5-6 stk mars-súkkulaði
2 plötur suðusúkkulaði
ávextir að eigin vali, svo sem kíví, jarðaber, rauð vínber og bláber
1/2 l rjómi
1/ l vanilluskyr
1/2 poki af hrískúlum
Setjið marengsbotnana í fat og brjótið þá niður. Skerið gróft niður Mars- og
suðusúkkulaði. Skerið einnig ávextina. Þeytið rjómann og hrærið að því loknu við
vanilluskyrinu saman við rjómann. Blandið súkkulaðinu og rjómablöndunni saman og
hellið yfir marengsinn. Dreifið ávöxtunum og hrískúlunum yfir.