Skyr pannacotta með kaffigeli, haframjölskurli,
kaffifroðu og ís
Skyr pannacotta
200 ml mjólk
2 stk matarlím
250 ml rjómi
40 g sykur
1/2 vanillustöng
150 g skyr
Matarlímið er bleytt upp í mjólkinni. Rjómi soðinn með vanillunni og sykrinum.
Rjómanum, mjólkinni og skyrinu blandað saman og smakkað til með ferskum
sítrónusafa. Sett í form og kælt.
Kaffigel
150 ml kaffi
50 ml heslihnetusíróp
1 1/2 matarlímsblað (3g)
Matarlímið er lagt í kalt vant og svo blandað saman við kaffið og sírópið. Þegar
kaffilögurinn er farinn að kólna þá er honum hellt varlega yfir skycottuna og
sett í kæli til að stífna.
Haframjölskurl
80 g haframjöl
50 g púðursykur
50 g smjör
sítrónubörkur af 1 sítrónu
5 g kanill
öllu blandað saman í hrærivél og mulið niður á bökunarplötu og bakað við 180
gráðu hita í 20 mínútur eða þar til blandan er orðin gullin á lit.
Kaffifroða
1 bolla expressó
70 ml heslihnetusíróp
100 g vanilluskyr
200 ml rjómi
30 g sykur
Öllu blandað saman og sett á gassprautu og 1 hylki sett í.
Skyrís með bláberjum (fæst í Nóatúni)
Svo þegar komið er að kvöldinu og bera á herlegheitin fram þá er skyrkottan
tilbúin með kaffigelinu frá því fyrr um daginn (eða kvöldinu áður).
kaffifroðunni er sprautað ofan á gelið á u.þ.b. 5 stöðum og restin sett í skál.
Haframjölskurlið er sett ofan á gelið á u.þ.b. 3 stöðum á fatinu og skyrísinn
settur ofan á haframjölskkurlið. Meiri ís settur í skál sér á borðið. Það er
nauðsynlegt að hafa gott kaffi með.