Rifsberjatriffle

1 bolli makkarónukökur
2 msk rifsberjahlaup
2 msk Bristol cream
4 eggjarauður
200 g sykur
500 ml rjómi
4 matarlímsblöð
2 msk Bristol cream
4 eggjahvítur
70 gr súkkulaði

Myljið makkarónukökurnar í skálina sem rétturinn verður borinn fram í. Hrærið rifsberjahlaupinu létt saman við og slettið Bristol cream létt yfir.
Leggið matarlímsblöðin í bleyti á meðan þið þeytið eggjarauðurnar og sykurinn vel saman, eða þar til eggjarauðan er ljósgul. Þeytið rjómann og eggjahvíturnar sitt í hvoru lagi og saxið súkkulaðið í litla bita. Bræðið matarlímið við vægan hita með 2 msk af Bristol cream, hellið því saman við eggjarauðurnar. Þá er komið að því að setja triffleið saman. Blandið varlega saman eggjarauðublöndunni og rjómanum. Setjið súkkulaðið saman við. Að síðustu bladið þið eggjahvítunum mjög varlega saman við með sleif. Þessari blöndu er síðan hellt yfir makkarónukökurnar. Látið standa í ísskáp í 8 klst. Borið fram með ferskum ávöxtum.