Rabarbaraeftirréttur II
4 egg
200 g hrásykur
½ lítri rjómi
100 g rjómaostur
2 vanillustangir
500 g rabarbari
1 tsk anís
10 msk agavesíróp
150 g heslihnetur
1 tsk kanill
Skerið rabarbara í bita og bakið með anís og helmingi af sírópi við 130°c í 15 mínútur. Myljið heslihnetur og steikið upp úr 5 msk af agavesírópi og kanil. Þeytið eggjarauður, hrásykur, vanillukorn og rjómaost. Þeytið rjómann og blandið saman við í lokin. Haldið köldu á milli. Setjið rabarbara neðst í glas, svo hnetur, svo rjómablöndunni. Endurtakið eins oft og þarf.