Rabbabaraeftirréttur

1 bolli sykur
1/2 bolli vatn
450 gr rabbabari, skorinn í smá bita

Setjið sykur og vatn í pott og hrærið þar til sykurinn leysist upp. Setjið rabbabarann í eldfast mót og hellið sykurblöndunni yfir hann. Bakið við 180°C í 30 mínútur þar til rabbabarinn er kraumandi, hrærið í mótinu annað slagið. Kælið og berið fram á eftirréttardiskum með þeyttum rjóma eða ís.