Pipar Sorbet
170 ml. vatn
75 gr. sykur
30 gr. grænn madagaskar pipar, safinn notaður líka
170 ml. hvítvín
Vatn og sykur soðið þar til lögurinn er vel tær. Piparinn og lögurinn af honum maukaður í matvinnsluvél. Bætið honum út í sykurlöginn og frystið í vél.