Mascarpone-skyr toppur
fyrir 5
250g skyr
150g mascarpone rjómaostur
50g flórsykur
2 dl rjómi, þeyttur
1 dl Baileys líkjör
4 blöð matarlím
Skyr, ostur og flórsykur er hrært vel saman. Þeytta rjómanum bætt við. Matarlíms
blöðin eru látin liggja í köldu vatni í 4 mín, Baileys líkjörinn hitaður. Síðan
eru matarlímsblöðin sett útí heitan líkjörinn og hrært vel saman, svo ekki
myndist kekkir. Líkjörsblöndinni er svo hrært varlega saman við ostinn.
Ostahræran er svo sett í heppileg ílát, eða glös og látin kólna í kæli í u.þ.b.
2 tíma.
Berjasósa
400g blanda af berjum
4 msk flórsykur
2 msk Grand Marnier eða appelsínusafi
1 msk sítrónusafi
Berjunum velt uppúr hráefninu og látið standa í u.þ.b. 1 klst í stofuhita.
