Innbakaðar eplasneiðar

Stór epli
Sykur og kanil eða
Koníak

Innbökunardeig :
250 gr hveiti
5 gr salt
1 egg
1 ½ dl pilsner
2 dl volgt vatn
½ dl olía
15 gr sykur
2 eggjahvítur

Eplin eru skræld og kjarninn stunginn úr. Skorin í ½ cm þykkar sneiðar, lagðar í bakka og sykri og kanil stráð yfir eða koníaki og sykri og marinerað í 1 kls.
Innbökunardeigið lagað. Öllu blandað saman nema eggjahvítunum og látið bíða í 1 kls. Rétt fyrir steikingu er stífþeyttum eggjahvítunaum blandað saman við.
Eplasneiðarnar síðan settar í innbökunardegið og steiktar í djúpri feiti. Færðar upp úr og látnar á þykkan pappír. Raðað á fat eða diska og flórsykri stráð yfir og gljáðir í ofni.
Framreiddir með apríkósusósu eða ferskjusósu.