Gamaldags trifli
12 makkarónukökur
4 msk hindberjasulta
4 msk sherrí (sætt)
450 gr niðursoðnar ferskjur
Vanillukrem:
2 egg
50 gr sykur
1 msk maísinamjöl
½ Vanillustöng
3 ½ dl mjólk
skraut
2 dl þeyttur rjómi
jarðarber
Brjótið makkarónukökurnar niður og setið í
glerskál. Setjið hindberjasultuna yfir og bleytið í með sherríinu.
Vanillukrem: Þeytið egg, sykur og maísinamjöl saman í þykkbotna potti, kljúfið
Vanillustöngina, takið kornin úr og þeytið saman við eggjahræruna. Þeytið
mjólkinni saman við og látið kremið sjóða, þeytið áfram og látið kremið sjóða í
nokkrar mín. Takið pottinn af hellunni og kælið, hrærið af og til í kreminu svo
ekki myndist skán. Skerið ferskjurnar niður og leggið yfir makkarónurnar, hellið
kreminu því næst yfir og skreytið með þeyttum rjóma og jarðarberjum.
A.T.H. í trifli má nota grand mariner í staðin fyrir sherrí og eplamauk eða
jarðarber í staðin fyrir hindberjasultu