Fyrirgefning syndanna
Hráefni:
200 g Lindt ljóst súkkulaði-
2 msk matreiðslurjómi
2 öskjur jarðaber, söxuð
3-4 dósir hreint jógúrt
4 handfylli Fitness morgunkorn
Aðferð:
Bræðið súkkulaðið við meðalhita og hrærið rjómanum saman við. Raðið 1/3 af
jarðaberjum á botninn í fallegu glasi, setjið 1 ½ matskeið af jógúrt yfir og
stráið morgunkorninu yfir og hellið slatta af súkkulaði yfir. Endurtakið þar til
allt hráefni er komið út í og berið fram með bros á vör.